Skilmálar

Þessir skilmálar gilda um kaup á vöru eða þjónustu hjá Sólartúni ehf.
Skilmálarnir eru samþykktir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggjum við okkar viðskiptavinum, örugg viðskipti á netinu.

1. Skilgreiningar

Seljandi er Sólartún ehf., kt. 610807-0890. Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að vera a.m.k. 18 ára.

2. Skilaréttur

Sólartún ehf skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Almennur skilafrestur á vörum gegn framvísun kvittunar er 30 dagar. Ef 30 dagar eru liðnir frá kaupum á vöru er ekki boðið upp á endurgreiðslu eða vöruskipti. Ef til endurgreiðslu kemur innan 30 daga frá kaupum, mun Sólartún ehf endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur greiddi fyrir hana – þ.e. með bakfærslu á kreditkorti eða innleggi á bankareikning viðskiptavinar ef um staðgreiðslu var að ræða.
Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð eða vegna rangrar afgreiðslu greiðir Sólartún ehf fyrir endursendingu.

3. Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Sólartún ehf áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða villu í skráningu. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturvirkar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

4. Persónuvernd

Seljandi meðhöndlar allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til þeirra viðskipta sem þær eru gefnar fyrir. Að öðru leyti vísast til upplýsinga um meðferð persónuupplýsinga og persónuvernd á heimasíðu okkar.

5. Öryggi

Sólartún ehf tryggir greiðsluöryggi eins og frekast er kostur á hverjum tíma. Allar greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd.

6. Greiðslumöguleikar

Í netverslun Sólartúns ehf er boðið upp á að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd hf.

7. Varnarþing

Þessir skilmálar samræmast íslenskum lögum. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

8. Um Sólartún ehf 

Ármúla 15,108 Reykjavík
Sími: 820-5200 Netfang: rt@mannlif.is; gudrun@mannlif.is
VSK nr: 133775
Kt: 610807-0890