Sakamálið – 11. þáttur: Glanspíubaninn
„Ég lét þær krjúpa. Það var eins með þær allar, ég hélt þeim í skefjum með skammbyssunni og batt saman öklana á þeim, síðan gerði ég lykkju á reipið og setti það um hálsinn á þeim. Svo stóð ég yfir þeim og tók í endann þar til þær hættu að brjótast um.“ Morðinginn þóttist vera…
Deila
Sakamálið – 10. þáttur: Raðmorðinginn sem var sáttur við að deyja
Raðmorðinginn hafði fullyrt að framlenging á lífi hans væri lítið annað en sóun á peningum skattborgara. Hann hafði verið sakfelldur fyrir að myrða fimm konur og lá njörvaður niðri á borði með mjúku yfirlagi í breyttum gasklefa í öryggisfangelsi í Nevada í Bandaríkjunum. Nál hafði verið sett í annan handlegg hans og senn myndu um…
Deila
Sakamálið – 9. þáttur: Blóðrauð Jól
Rétt fyrir jólin 1987 ákvað Ronald Gene Simmons að losa sig við alla sem hann taldi vilja sér illt. Fyrsta fórnarlambið var eiginkona hans og sex dögum síðar var fjöldi fórnarlambanna kominn upp í sextán.
Deila
Sakamálið – 8. Þáttur: Morðin á Meeks fjölskyldunni og Piparjómfrúin og hænsnabóndinn
Tvö mál urðu fyrir valinu í þennan 8. þátt Sakamálsins. Annarsvegar heyrum við af brærum sem voru hreinræktuð óbermi. Þeir voru á meðal auðugustu manna á heimaslóðum sínum, en alkunna var að auður þeirra var ekki tilkominn með ærlegum hætti. Þeir skirrtust ekki við að úthella blóði ef svo bar undir og því fékk fjölskylda…
Deila
Sakamálið – 7. Þáttur: Hver var maðurinn í möttlinum?
Aðkoman var hræðileg, rúm Helenu var rjúkandi rúst, koddinn útataður í blóði. Hún lá þar látin og náttfötin hennar orðin að ösku. Önnur hlið líkama hennar var illa brunninn og þrír blóðugir skurðir voru á annarri augabrún hennar. Hver var sekur um þennan hrottalega glæp? Slapp hann úr klóm réttvísinnar? Hver var maðurinn í möttlinum?
Deila
Sakamálið – 6. þáttur: Hinn góðlátlegi „Don Kíkóti“
Húsvörðurinn hafði fundið bein í ofni á rannsóknarstofunni og þar fundust einnig hnappur, smámynt, og fleiri beinaleifar, þar á meðal kjálkabein. Loks fannst efri bolur; handleggja- og höfuðlaus, loðinn og að hluta til brunninn og blóðugur fatnaður. Borgin iðaði af getgátum vegna hvarfs læknisins og hver fiskisagan á fætur annarri fékk líf og náði flugi.…
Deila
Sakamálið – 5. Þáttur: Blóðsugan frá Düsseldorf
Hann braust inn í krá í Mülheim am Rhein, þar rakst hann á níu ára gamla, sofandi stúlku. Hann kyrkti stúlkuna og skar síðan á háls og fékk, að eigin sögn, sáðlát þegar blóðið draup úr sári barnsins á gólfið. Daginn eftir fór hann á krá, sem var gegnt morðstaðnum, í þeim tilgangi einum að…
Deila
Sakamálið – 4. þáttur: Sápugerðarkonan Leonarda Ciunciulli
Í ítarlegri yfirlýsingu sagði morðkvendið frá afdrifum eins fórnarlambs síns: „setti ég líkamshlutana í pott, bætti við sjö kílóum af vítissóda, sem ég hafði keypt til að búa til sápu, og hrærði í þangað til allt var orðið að þykkum, dökkum vellingi sem ég hellti í nokkrar fötur sem ég tæmdi í nálæga rotþró.“ Hún…
Deila
Sakamálið – 3. þáttur: Mary Ann Cotton
Það var smávaxin og veikbyggð kona, íklædd svörtum fatnaði með svart og hvítt sjal yfir herðarnar, í raun aumkunarverð manneskja, sem var leidd af tveimur lögreglumönnum. Hún eitrað fyrir fórnarlömbum sínum og virtist þá engu skipta hvort um var að ræða börn eða fullorðið fólk. Í sakamáli vikunnar segir af morðkvendinu sem sagðist jafnsaklaus og…
Deila
Sakamálið – 2. þáttur: Morðinginn með mörgu nöfnin
Hann var svikahrappur hinn versti og skirrtist ekki við að myrða ef það hentaði markmiðum hans. Hann strauk að heiman setán ára að aldri og skildi eftir sig slóð svika allar götur þaðan í frá. Í sakamáli vikunnar heyrum við um morðingjann með mörgu nöfnin, lífshlaup hans, ódæði og endalok.
Deila